Skapandi samvinna

45 mínútna fyrirlestur á vinnustað

Skapandi hugsun er lykilhæfni sem öll fyrirtæki þurfa á að halda.

Í fyrirlestrinum Skapandi samvinna fá þátttakendur tækifæri til að upplifa hvernig skapandi hugsun getur orðið hluti af daglegu starfi. Fyrirlesturinn er lifandi og myndrænn og unnið er með leikgleði og samspil við hópinn. Við veitum innblástur og einföld verkfæri sem hægt er að nota á vinnustaðnum.

Við ræðum meðal annars:

  • Hvað er skapandi hugsun – og hvers vegna skiptir hún máli?

  • Hvernig nýtist skapandi hugsun í starfi og fyrirtækjum?

  • Hvað stoppar okkur í að hugsa skapandi?

  • Hvernig birtist skapandi hugsun í daglegu starfi og teymisvinnu?

  • Tvö einföld og áhrifarík verkfæri til að efla skapandi fundarmenningu

Með því að efla skapandi hugsun verða fyrirtæki fljótari að finna lausnir, ná árangri og byggja upp sterkari teymi. Skapandi samvinna er stuttur en kraftmikill fyrirlestur sem kveikir neista, opnar samtal og gefur starfsfólki hugmyndir að nýjum vinnuaðferðum í daglegu starfi.