Unnið að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar

Vestmannaeyjabær í samstarfi við RATA vinna að mótun atvinnustefnu fyrir Vestmannaeyjar. Markmið verkefnisins er að móta skýra framtíðarsýn fyrir atvinnulíf í bænum og styrkja samkeppnishæfni og fjölbreytni atvinnugreina. 

Samkvæmt Vestmannaeyjabæ þá mun “bærinn standa fyrir samráðsfundum með fulltrúum atvinnulífsins. Markmið þeirra er að skapa vettvang fyrir opið samtal og safna sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við mótun atvinnustefnunnar. Á fundunum verður farið yfir stöðu atvinnumála í Vestmannaeyjum og rætt um helstu tækifæri og áskoranir til framtíðar, ásamt styrkleikum og veikleikum atvinnulífsins.

Til fyrstu fundanna verður boðað núna í júní og svo seinni partinn í ágúst. Fulltrúar fyrirtækja munu fá boð á næstu dögum. 
Vestmannaeyjabær hvetur atvinnulífið til að taka virkan þátt í þessari mikilvægu stefnumótunarvinnu”

Hægt er að fylgjast með verkefninu á vefsíðu Vestmannaeyja hér

Next
Next

Hafdís Huld hlýtur viðurkenningu fyrir faglega og framúrskarandi verkefnastjórn